Næstu námskeið

Byrjendanámskeið á þriðjudögum

Hefst 25. ágúst

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra grunnspor og takta í salsa í skemmtilegu og afslöppuðu umhverfi. Engin reynsla er nauðsynleg – námskeiðið hentar bæði einstaklingum og pörum sem vilja byrja frá grunni, hreyfa sig, kynnast nýju fólki og njóta latneskra takta.


Byrjendanámskeið á fimmtudögum

Hefst 27. ágúst

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra grunnspor og takta í salsa í skemmtilegu og afslöppuðu umhverfi. Engin reynsla er nauðsynleg – námskeiðið hentar bæði einstaklingum og pörum sem vilja byrja frá grunni, hreyfa sig, kynnast nýju fólki og njóta latneskra takta.


Grunnnámskeið á þriðjudögum

hefst 25. ágúst

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið byrjendanámskeiði hjá Salsastöðinni eða sambærilegu byrjendanámskeiði annars staðar og vilja styrkja grunninn sinn, bæta takt, leiðslu og flæði og læra fleiri skemmtilegar samsetningar í salsa.


Framhaldsnámskeið 3 á sunnudögum

Hefst 30. ágúst

Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið byrjendanámskeiði og Grunnnámskeiði hjá Salsastöðinni. Ef nemandi hefur klárað önnur sambærileg námskeið þá gildir það líka.


Framhaldsnámskeið 5 á sunnudögum

Hefst 30. ágúst

Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið byrjenda- og grunnnámskeiði hjá Salsastöðinni. Nemendur sem hafa lokið sambærilegum námskeiðum annars staðar geta einnig skráð sig.

Á námskeiðinu verður kennt nýtt námsefni sem ekki hefur áður verið kennt hjá Salsastöðinni.

Lögð verður meiri áhersla á Rueda de Casino en áður hefur verið gert á framhaldsnámskeiðum Salsastöðvarinnar.


Við bjóðum upp á einkatíma í salsa, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða vilt fínpússa sporin sem þú kannt og bæta við nýjum.

Tímarnir henta bæði einstaklingum og pörum, og hægt er að vera frá einu pari upp í 4 pör í hóp.

Hafðu samband og við setjum saman tilboð sem hentar þér, miðað við fjölda tíma, hvort þörf er á sal og hversu margir taka þátt.

Sendu fyrirspurn á:

salsastodin@gmail.com

Viltu taka salsadansinn á næsta stig?


Viltu hressa upp á vinnudaginn? 💃

Við bjóðum fyrirtækjum upp á skemmtilega og orkugefandi salsatíma sem brjóta upp daginn og styrkja liðsheildina.

Hægt er að velja um:

  • Solo tíma (ca. 30 mín) þar sem allir taka þátt saman

  • Paratíma (ca. 45–60 mín)  þar sem farið er í grunnspor og einföld samvinna í pörum

Engin reynsla er nauðsynleg, markmiðið er að hafa gaman, hreyfa sig og skapa létta og jákvæða stemningu á vinnustaðnum.

Tímarnir eru sniðnir að þínum hópi og henta bæði litlum og stórum fyrirtækjum.

Hafðu samband og við finnum lausn sem passar ykkur!


salsastodin@gmail.com


Salsa nærir hug og hjarta.

Skráðu þig á námskeið hjá Salsastöðinni og vertu hluti að einhverju stærra og meira.

Salsastöðin er nýr Salsadansskóli í Reykjavík sem býður nemendum upp á dansnámskeið í Salsa, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Lesið meira um Salsastöðina og markmið hennar